100 daga alikálfur frá Lágafelli
|
KJÖTFRÉTTIR
Jólasteik eða bara núna strax
Sæunn og Halldór á Lágafelli í Landeyjum voru að senda okkur myndarlega alikálfavöðva og snitsel.
Eins og þeir vita sem hafa prófað er þetta eitthvert meyrasta og gómsætasta kjöt sem sögur fara af.
Kjötið kemur ferskt beint úr sláturhúsinu og má því frysta ef vill og geyma til jólanna.
Snitselið er sérstaklega þægilegt hráefni sem má elda snögglega.
Hér er stutt blogg um það þegar við elduðum þessa gersemi fyrst fyrir tveimur árum síðan.
|